Umhverfisstofnun hefur endunýjað starfsleyfi ORF Líftækni til ræktunar
byggs í Tilraunagróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í
Ölfusi til næstu tíu ára.
meira
Rætt var við Eirík Steingrímsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, um erfðabreyttar lífverur í Kastljósi í gærkvöldi.
meira
Starfsemi ORF Líftækni var til umfjöllunar í þættinum Nýsköpun – Íslensk
vísindi í Sjónvarpinu mánudaginn 14. febrúar síðastliðinn. Fjallað var
um erfðatæknina sem vísindamenn fyrirtækisins hafa þróað til að
framleiða sérvirk prótein.
meira
Þingsályktunartillagan og greinargerð með henni full af rangfærslum og lýsir algjörri vanþekkingu
37 vísindamenn við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á
Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hólaskóla, Matís, Matvælastofnun,
Biopol og Íslenska erfðagreiningu gera harðorðar athugasemdir við
þingsályktunartillögu um útiræktun á erfðabreyttum lífverum, sem nú
liggur fyrir Alþingi, og mæla eindregið gegn því að tillagan verði
samþykkt
meira
Fjölmargir háskólanemar og aðrir gestir heimsóttu bás ORF Líftækni til
að fræðast um fyrirtækið og starfsemi þess á Framadögum sem haldnir voru
í Háskólabíói 9. febrúar síðastliðinn.
meira
-Kaldar kveðjur frá alþingismönnum á afmælinu
ORF Líftækni hf er tíu ára í dag. Fyrirtækið
var stofnað af þeim Birni Lárusi Örvari , Einari Mäntylä og Júlíusi B.
Kristinssyni 1. febrúar 2001 til að þróa nýstárlega aðferð við
framleiðslu verðmætra, sérvirkra próteina í erfðabreyttu byggi.
meira
Umhverfisráðherra hefur staðfest ákvörðun Umhverfisstofnunar um leyfi fyrir ORF Líftækni til að rækta erfðabreytt bygg í Gunnarsholti, en nokkrir aðilar höfðu kært leyfisveitinguna. ORF Líftækni fagnar þessum úrskurði ráðherra og að nú hafi óvissu um áframhaldandi akuryrkju verið eytt. Úrskurður ráðherra er byggður á faglegum forsendum og er fyrirtækinu mikilvægur fyrir áframhaldandi uppbyggingu hér á landi.
meira
Nú er lokið sérstöku alþjóðlegu markaðsátaki með styrk frá
Tækniþróunarsjóði, sem ORF Líftækni hefur unnið að til kynningar og
markaðssetningar á vörumerkjum fyrirtækisins.
Verkefnið var
viðamikið og hefur þegar skilað miklum árangri. Einkum hefur sókn á nýja
markaði verið árangursrík og nú þegar eru yfirstandandi
samningaviðræður við nokkur stór, alþjóðleg fyrirtæki um kaup á ISOkine™
og DERMOkine™ vörum fyrirtækisins.
meira
Eiríkur Sigurðsson, líffræðingur og upplýsingafulltrúi ORF Líftækni,
svarar í Fréttablaðinu í dag tveimur aðsendum greinum sem nýlega
birtust í blaðinu. Í greininni hrekur Eiríkur ýmsar staðhæfingar sem
fram hafa komið um erfðabreytt bygg.
meira
ORF Líftækni og indverska fyrirtækið DM Corporation, stefna að samstarfi við þróun, framleiðslu og markaðssetningu á próteinlyfjum fyrir alþjóðlegan markað.
Viljayfirlýsingin felur í sér að stofnað verður nýtt lyfjafyrirtæki til að þróa og markaðssetja sérvirk lyfjaprótein. ORF Líftækni leggur nýju fyrirtæki til sérþekkingu sína og einkaleyfisbundið framleiðslukerfi fyrirtækisins í erfðabreyttu byggi. Samstarfið gerir ORF Líftækni kleift að þróa og aðlaga einstakt og öruggt framleiðslukerfið að framleiðslu próteinlyfja.
meira
Björn Örvar og Einar Mäntylä, stofnendur ORF Líftækni og sérfræðingar í
sameindaerfðafræði plantna fjalla um örugga ræktun á erfðabreyttu byggi
í grein sem birt er í Fréttablaðinu.
meira
10. júlí 2010. Ítarlega er fjallað um Orf Líftækni í grein í
Fréttablaðinu og rætt við Björn Örvar, framkvæmdastjóri Orf Líftækni um
möguleika líftækninnar og fyrirtækisins. Í viðtalinu kemur m.a. fram að
Orf Líftækni er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu og að það
framleiði vöru sem er einstök á heimsvísu.
meira
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sif Cosmetics kynnti í dag EGF BIOeffect húðdropa sem eru byltingarkennd nýjung á snyrtivörumarkaði. Droparnir innihalda svokallaðan frumuvaka sem hvetur endurnýjun húðfruma og spornar gegn öldrun húðarinnar. Í nýlegum prófunum á Íslandi sögðu 76% þátttakenda að húð þeirra hefði orðið unglegri og 98% þátttakenda sögðust taka eftir frískara yfirbragð á húðinni eftir notkun húðdropanna. Fjölmargir áhugasamir gestir heimsóttu kynningu fyrirtækisins á EGF BIOeffectTM húðdropunum á Nauthóli í Nauthólsvík í dag.
meira
Nýverið hlaut ORF Líftækni hf. ásamt samstarfsaðilum sínum eftirsóttan rannsóknastyrk hinnar Evrópsku Eurostars áætlunar. ORF Líftækni leiðir verkefnið sem snýr að þróun nýrrar tækni við úrvinnslu próteina sem hefur burði til þess að verða bæði einfaldari og hagkvæmari en áður þekkist. Þetta er í annað sinn sem íslenskur aðili hlýtur styrk úr Eurostars áætluninni.
meira
Fyrstu húðvörurnar með vaxtarþætti sem framleiddur er í Grænni smiðju ORF Líftækni í Grindavík verða brátt settar á markað í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjum samningi ORF Líftækni og bandaríska húðvörufyrirtækisins Ronald L. Moy, MD. Inc.
Samningur fyrirtækjanna er til þriggja ára og hefur verulega þýðingu fyrir ORF Líftækni sem mun bæta við sig starfsfólki í kjölfarið og auka framleiðslugetu sína. Þetta er í fyrsta skipti sem vaxtarþættir, framleiddir í plöntum, eru notaðir í húðvörur.
meira
ORF Líftækni er þessa dagana að flytja höfuðstöðvar sínar um set. Fyrirtækið hefur frá árinu 2007 verið með aðsetur í húsnæði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Keldnaholti en flytur nú í nýtt húsnæði í Víkurhvarfi 3 í Kópavogi. Mikil breyting verður á allri aðstöðu með flutningunum en nýja húsnæðið er mun stærra og verður sérsniðið að starfsemi fyrirtækisins.
meira
ORF Líftækni hf. og Háskóli Íslands hafa undirritað samning um samstarf á sviði rannsókna og tækniþróunar á lífvirkum próteinum.
meira
Umhverfisstofnun hélt annan kynningarfund á Grand Hóteli í gær um umsókn ORF Líftækni um leyfi til tilraunaræktunar á erfðabreyttu byggi í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Vel var mætt á kynningarfundinn og fluttu fulltrúar Umhverfisstofnunar, umsagnaraðila og ORF Líftækni erindi sín þar.
meira
ORF Líftækni er þátttakandi í Vísindavöku 2009, sem er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, föstudaginn 25. september, í Listasafni Reykjavíkur kl. 17:00-22:00.
meira
ORF Líftækni hlaut leyfi Umhverfisstofnunar fyrr í sumar til þess að rækta erfðabreytt bygg utandyra í tilraunaskyni og var byggi sáð í tæplega 80 fermetra reit, þar af um helmingurinn erfðabreytt, hinn helmingurinn óerfðabreytt.
meira
Skemmdarverk voru unnin á tilraunareit ORF Líftækni í Gunnarsholti helgina 15.-16. ágúst. Allt bygg í reitnum var klippt, rifið upp eða troðið niður, auk þess sem varnarbelti úr höfrum var líka skemmt.
meira
Umhverfisstofnun hefur samþykkt að veita ORF Líftækni hf. leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi í tilraunaskyni á tímabilinu 2009-2013. Niðurstaða Umhverfisstofnunar er sett fram í greinargerð sem birt er í frétt á vef Umhverfisstofnunar.
meira
Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson heimsótti Grænu smiðjuna hjá ORF Líftækni fimmtudaginn 5. mars.
meira
ORF Líftækni og Sapphire Biosciences
hafa undirritað samkomulag um dreifingu á ISOkine vörulínu ORF Líftækni í
Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. ISOkineTM eru vaxtarþættir
(growth factors/cytokines), en þeir eru einkum notaðir við rannsóknir í
líf- og læknisfræði þar sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma,
sérhæfingu þeirra og hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative
medicine), til lyfjarannsókna og lækningameðferða. www.sapphirebioscience.com
meira
ORF Líftækni hefur undanfarin ár verið að þróa aðferð til framleiðslu á sérvirkum próteinum í byggplöntum fyrir læknisrannsóknir, lyf og iðnað. ORF Líftækni hvorki framleiðir né þróar erfðabreytt matvæli eða fóður og hefur aldrei gert. Fyrirtækið hefur nú sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar til ræktunar erfðabreytts byggs á akri, til að gera samanburð á byggyrkjum, úrvinnslu, hreinsun og fullvinnslu á próteinum til iðnaðarnota.
meira
ORF Líftækni færir enn út kvíarnar og hefur nýverið undirritað samkomulag við Voden Medical um dreifingu á vörum fyrirtækisins á Ítalíu.
meira
ORF Líftækni hefur samið við fyrirtækið
Cambridge Bioscience Ltd. um dreifingu á ISOkine vörulínu fyrirtækisins á
Bretlandseyjum og Írlandi. Cambridge Bioscience Ltd. er leiðandi
dreifiaðili á vörum fyrir rannsóknavinnu, einkum í lífvísindum.
Samningurinn nær til ISOkineTM
vörulínunnar, sem eru vaxtarþættir (growth factors/cytokines).
Vaxtarþættir eru einkum notaðir við líf- og læknisfræðirannsóknir þar
sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma, sérhæfingu þeirra og
hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative medicine), til lyfjarannsókna
og lækningameðferða. www.bioscience.co.uk
meira
Sýningin Reykjanes 2009 verður haldin í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og þar verður kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu.
meira
ORF Líftækni og Cellsystems Biotechnologie Vertrieb GmbH undirrituðu nýlega samning um dreifingu á ISOkineTM vörulínu fyrirtækisins í Þýskalandi, Sviss og Austurríki.
meira
ORF Líftækni hefur samið um dreifingu á vörum sínum í Japan við Veritas Corp. sem er leiðandi dreifiaðili í Japan á vörum fyrir rannsóknavinnu, einkum í lífvísindum.
meira
Tónlistarkonan Björk hefur undanfarið verið að kynna sér tækifæri í nýsköpun og hvernig auka megi fjölbreytni í atvinnulífi íslendinga með áherslu á sjálfbærni og grænan iðnað. Á dögunum heimsótti Björk fyrirtækið ORF og kynnti sér starfsemi þess.
meira
ORF Líftækni hefur samið við Bio-Medical Science Co. (BMS) um dreifingu á ISOkineTM vörulínu fyrirtækisins í Kóreu.
meira
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tók hátæknigróðurhús ORF Líftækni, Grænu smiðjuna, formlega í notkun við hátíðlega athöfn í dag, fimmtudaginn 8. maí 2008, í Grindavík.
meira
ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2008 þann 28. febrúar s.l. sem veitt eru af Rannís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Útflutningsráði.
meira
Nýlega skrifaði ORF Líftækni hf undir samkomulag við kínverska lyfjafyrirtækið Sinopharm.
meira
Á sumardaginn fyrsta opnaði ORF endurbætta útgáfu af íslensku heimasíðu þess (orf.is)
meira
Miðvikudaginn 21. mars kom forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn til ORF á Keldnaholti
meira
Föstudaginn 23. febrúar voru nýjar höfuðstöðvar ORF formlega vígðar að viðstöddum hluthöfum, starfsmönnum og öðrum gestum
meira
ORF hefur fengið úthlutað 19.000 fermetra lóð frá Grindavíkurbæ. Jafnframt hefur Byggingarnefnd Grindavíkur samþykkt teikningar að 2000 fermetra gróðurhúsi fyrirtækisins
meira
Á dögunum var undrritað samkomulag um samstarf sveitarfélagsins Skagafjarðar og ORF á sviði líftækni þar sem kannaðir verða kostir þess að taka upp sameindaræktun á afmörkuðu svæði í Skagafirði og próteinúrvinnslu í Skagafirði tengt þessari ræktun
meira
Í desember blaði BiotechScandinavia var ítarleg umfjöllun um ORF, starfsemi þess og fyrirætlanir
meira
Nýlega hélt ORF upp á þann merka áfanga að hafa framleitt í vefjaræktun 10.000 erfðatækniplöntur
meira
ORF hefur nýlega gengið frá samningum um sölu á hlutafé fyrir um 350 milljónir króna. Kaupendur eru 20 íslenskir aðilar en stærsti einstaki fjárfestirinn er Valiant Fjárfestingar ehf., dótturfélag Sunda ehf. Jafnframt var kosin ný stjórn félagsins en stjórnarformaður hennar er Tanya Zharov.
meira