ORF Líftækni semur um dreifingu í Þýskalandi, Sviss og Austurríki við CellSystems
ORF Líftækni og Cellsystems Biotechnologie Vertrieb GmbH undirrituðu nýlega samning um dreifingu á ISOkineTM vörulínu fyrirtækisins í Þýskalandi, Sviss og Austurríki. ISOkineTM eru vaxtarþættir (growth factors/cytokines), en þeir eru einkum notaðir við rannsóknir í líf- og læknisfræði þar sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma, sérhæfingu þeirra og hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative medicine), til lyfjarannsókna og lækningameðferða. www.cellsystems.de
Til baka