Umfjöllun um ORF í BiotechScandinavia
Í desemberblaði BiotechScandinavia var ítarleg umfjöllun um ORF, starfsemi þess og fyrirætlanir. M.a. var viðtal við framkvæmdastjóra ORF, Björn Örvar, um tæknina, markaðinn og stöðu fyrirtækisins. BiotechScandinavia kemur út á ensku, tvisvar á ári, og er því er það mikill heiður fyrir ORF að blaðið skuli fjalla um fyrirtækið í heilli opnu, en blaðið er stærsti fréttamiðillinn á Norðurlöndum um líftækni.
Til baka