Björk hvetur ORF til dáða.
Tónlistarkonan Björk hefur undanfarið verið að kynna sér tækifæri í nýsköpun og hvernig auka megi fjölbreytni í atvinnulífi íslendinga með áherslu á sjálfbærni og grænan iðnað. Á dögunum heimsótti Björk fyrirtækið ORF og kynnti sér starfsemi þess. Í útvarpsþættinum „Í heyranda hljóði” á RÚV ræddi Björk nauðsyn nýsköpunar og fjölbreytts atvinnulífs og tók dæmi:
„Það var rosalega jákvætt og uppbyggjandi fyrir mig heimsækja fyrirtækið ORF og sjá hvernig þeir hafa þróað aðferð til að rækta byggprótein í gróðurhúsi í Grindavík, með grænni raforkulýsingu og í Heklu vikri. Þeir eru líka með vinnustað í Reykjavík þar sem þeir hafa virkjað íslenskt hugvit í eitt framsæknasta líftæknifyrirtæki heimsins í dag. Og allt í harmóniu við náttúruna og vísindin og er mjög arðbært”.
Óhætt er að segja að starfsfólki ORF þyki ákaflega vænt um þessa hvatningu og viðurkenningu frá okkar virtu tónlistarkonu. Takk Björk!
Til baka