Varúðarráðstafanir og eftirlit með tilraunareit útiræktunar í Gunnarsholti sumarið 2009
ORF Líftækni hlaut leyfi Umhverfisstofnunar fyrr í sumar til þess að rækta erfðabreytt bygg utandyra í tilraunaskyni og var byggi sáð í tæplega 80 fermetra reit, þar af um helmingurinn erfðabreytt, hinn helmingurinn óerfðabreytt. Tilraunareiturinn var alls um 18.500 fermetrar með 3-7 metra breiðum varnarbeltum úr höfrum umhverfis byggið í miðjunni, plægðum svæðum og óræktuðum grassvæðum út að rafmagnsgirðingu sem afmarkaði allan reitinn.
Þessar varúðarráðstafanir voru hluti af skilyrðum Umhverfisstofnunar fyrir veitingu leyfis til ræktunarinnar. Einnig voru sett skilyrði um að yfir reitinn skyldi strengja fuglalínur eða net og ákvað ORF að gera tilraunir með fuglanet að þessu sinni, í stað þess að nota einungis línur líkt og áður hefur verið gert. ORF Líftækni hefur einnig haft reglulegt eftirlit með tilraunareitnum á ræktunartímanum en farnar voru 11 eftirlitsferðir á 7 vikum, sú síðasta á föstudaginn 14. ágúst.
Eftir að tilraunareitur ORF í Gunnarsholti var eyðilagður sendi Umhverfisstofnun fulltrúa sína á vettvang til þess að skoða vegsummerki. Skýrsla Umhverfisstofnunar um málið gerir grein fyrir aðstæðum á vettvangi og fylgir hér með. Umhverfisstofnun óskaði einnig eftir greinargerð ORF Líftækni um notkun varnarneta á ræktunarsvæðinu, sem fyrirtækið skilaði samdægurs, og fylgir hún einnig með.
Skýrsla Umhverfisstofnunar vegna tilraunareits í Gunnarsholti
Skýrsla ORF Líftækni um varnarnet yfir tilraunareitum
Til baka