Endurnýjað starfsleyfi til gróðurhúsaræktunar að Reykjum í Ölfusi
Umhverfisstofnun hefur endunýjað starfsleyfi ORF Líftækni til ræktunar byggs í Tilraunagróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi til næstu tíu ára.
ORF hefur notað aðstöðuna mörg undanfarin ár til þess að stunda rannsóknar og þróunarstarf, en undanfarin ár hefur aðstaðan þó ekki verið fullnýtt. Með endurnýjuðu samkomulagi ORF Líftækni við LBHÍ batnar nýting gróðurhússins verulega og aðstaðan kemur til móts við aukna ræktunarþörf sem fylgir uppbyggingu græns hátækniiðnaðar ORF Líftækni.
Starfsemin að Reykjum verður sambærileg við, en þó mun minni að umfangi en sú ræktun sem fram fer í Grænu Smiðjunni, hátæknigróðurhúsi ORF Líftækni í Grindavík.
Til baka