Forseti Íslands heimsækir Grænu smiðjuna
Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson heimsótti Grænu smiðjuna hjá ORF Líftækni fimmtudaginn 5. mars. Þar fræddist hann um framleiðslu fyrirtækisins á sérvirkum próteinum, en þau eru framleidd í byggplöntum sem ræktaðar eru í gróðurhúsinu Græn smiðja í Grindavík. Forsetinn spjallaði við starfsfólkið, sem sýndi honum handtökin við uppskeru og vinnslu byggsins, þar til próteinin eru unnin úr því. ORF kann forsetanum bestu þakkir fyrir góða heimsókn.
Til baka