ORF Líftækni og Háskóli Íslands undirrita samstarfssamning
ORF Líftækni hf. og Háskóli Íslands hafa undirritað samning um samstarf á sviði rannsókna og tækniþróunar á lífvirkum próteinum.
ORF Líftækni hefur á undanförnum árum þróað eigin kerfi í sameindaræktun fyrir framleiðslu á sérvirkum próteinum, svokölluðum vaxtarþáttum. Þeir eru meðal annars notaðir í læknisrannsóknir, í lyfjaiðnaði og í snyrtivörum.
Samstarfi ORF Líftækni og Háskólans er ætlað að hvetja til gagnkvæmrar nýtingar á rannsóknaaðstöðu og sameiginlegra kaupa og reksturs á dýrum tækjabúnaði. Með samningnum er einnig stefnt að samstarfi í markaðs- og viðskiptamálum sem tengjast viðskiptaþróun, markaðssetningu og sölu á lífvirkum próteinum.
Í samkomulaginu felst að vísindamenn ORF Líftækni muni sinna afmarkaðri kennslu og kynningu á starfsemi og rannsóknarverkefnum fyrirtækisins fyrir starfsmenn og nemendur Háskóla Íslands.
Til baka