ORF flytur í nýjar höfuðstöðvar
Föstudaginn 23. febrúar voru nýjar höfuðstöðvar ORF formlega vígðar að viðstöddum hluthöfum, starfsmönnum og öðrum gestum, en hinar nýju höfuðstöðvar eru til húsa í Líftæknihúsinu, Keldnaholti. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að ýmsum breytingum og endurbætum á húsnæðinu þannig að það hentaði betur undir starfsemi ORF. Með þessum flutningum leysast húsnæðismál fyrirtækisins á farsælan hátt til næstu ára en þar verður til húsa öll erfðatækni, vefjaræktun og smáskala próteinhreinsun, ásamt markaðsdeild og skrifstofum.
Til baka