Lóð í Grindavík fyrir gróðurhús
ORF hefur fengið úthlutað 19.000 fermetra lóð frá Grindavíkurbæ. Jafnframt hefur Byggingarnefnd Grindavíkur samþykkt teikningar að 2000 fermetra gróðurhúsi fyrirtækisins, en framkvæmdir við grunn þess munu hefjast um miðjan febrúar 2007. Húsið verður af fullkomnustu gerð en þar verður öll ræktun fyrir svokallaða Græna smiðju, og þar mun fræhreinsun, þresking og afhýðing fara fram. Auk þess verður lokaskrefið í vefjaræktuninni flutt í gróðurhúsið. Mjög auðvelt verður að bæta við húsið samfara aukinni þörf; bæði er lóðin stór og eins er húsið byggt á stöðluðum einingum (modular).

Lóð ORF rétt fyrir utan Grindavík
Til baka