ORF Líftækni hlýtur Eurostars rannsóknastyrk
Nýverið hlaut ORF Líftækni hf. ásamt samstarfsaðilum sínum eftirsóttan rannsóknastyrk hinnar Evrópsku Eurostars áætlunar. ORF Líftækni leiðir verkefnið sem snýr að þróun nýrrar tækni við úrvinnslu próteina sem hefur burði til þess að verða bæði einfaldari og hagkvæmari en áður þekkist. Þetta er í annað sinn sem íslenskur aðili hlýtur styrk úr Eurostars áætluninni.
Vísindamenn ORF Líftækni vinna verkefnið með samstarfsaðilum, Tæknirannsóknastofnun Finnlands (VTT), sem er stærsta stofnun sinnar tegundar í Norður Evrópu, og Nordic Biopharma, sænskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í prófunum í líflæknisfræði.
Eurostars áætluninni var hleypt af stokkunum 2008 með samstarfi Evreka og framkvæmdanefndar Evrópusambandsins og Rannsóknarsjóðum 31 Evrópulands, þ.á.m. Íslands. Markmið Evreka er að auka framleiðni og samkeppnishæfni Evrópsks atvinnulífs með tækniþróun og leggja grunninn að sjálfbærum hagvexti og atvinnusköpun. Eurostars áætlunin styrkir á samkeppnisgrundvelli verkefni með samfélagslegt gildi þar sem markmiðið er þróun á nýrri vöru, ferli og þjónustu.

Til baka