ORF Líftækni hlýtur Nýsköpunarverðlaunin 2008
ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2008, en það eru Rannís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Útflutningsráð sem veita þessi verðlaun árlega. Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunarþingi 28. febrúar s.l. en það kom í hlut heilbrigðisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, að afhenda þau að þessu sinni.
ORF Líftækni var stofnað í árslok 2000 af frumkvöðlunum Birni Lárus Örvar, Einari Mäntylä og Júlíusi B Kristinssyni, ásamt RALA og þáverandi Iðntæknistofnun. Í árslok 2005 og á árinu 2006 komu svo að fyrirtækinu nýir fjárfestar sem gerðu fyrirtækinu kleyft að flýta enn frekar tækniþróun þess. ORF hefur skipað sér í fremstu röð í erfðatækni byggs. Orfeus kerfi fyrirtækisins er nú eitt öflugasta og sérstæðasta kerfið í svokallaðri sameindaræktun, þ.e. framleiðslu sérvirkra proteina í plöntum. Afurðir fyrirtækisins eru ISOkine vaxtarþættir fyrir stofnfrumurannsóknir, krabbameinsrannsóknir, vefjaverkfræði og rannsóknir í ónæmisfræði. Vaxtarþættir finnast m.a. í mannslíkamanum þar sem þeir gegna mikilvægu hlutverki við stjórnun fruma og sérhæfingu. Ennfremur eru margir vaxtarþættir notaðir í lyf eða í lyfjaþróun, og nýverið er farið að prófa notagildi þeirra í snyrtivörur. Kaupendur eru því vísindamenn, rannsóknarstofnanir, sjúkrahús, fyrirtæki í lyfjaþróun eða þróun snyrtivara. ORF hefur nú þegar kringum eitt hundrað mismunandi vaxtarþætti í framleiðsluferli sínu sem gerir ORF Líftækni að stærsta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum. Nú þegar er ORF í samningum við leiðandi rannsóknarstofnanir í N-Ameríku á sviði ónæmisfræði og stofnfrumurannsókna um notkun ISOkine vaxtarþátta í rannsóknum þeirra.
Til baka