ORF Líftækni semur við Cambridge Bioscience Ltd.
ORF Líftækni hefur samið við fyrirtækið
Cambridge Bioscience Ltd. um dreifingu á ISOkine vörulínu fyrirtækisins á
Bretlandseyjum og Írlandi. Cambridge Bioscience Ltd. er leiðandi
dreifiaðili á vörum fyrir rannsóknavinnu, einkum í lífvísindum.
Samningurinn nær til ISOkineTM
vörulínunnar, sem eru vaxtarþættir (growth factors/cytokines).
Vaxtarþættir eru einkum notaðir við líf- og læknisfræðirannsóknir þar
sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma, sérhæfingu þeirra og
hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative medicine), til lyfjarannsókna
og lækningameðferða. www.bioscience.co.uk
Til baka