Nýir hluthafar ganga til liðs við ORF Líftækni hf.
ORF hefur nýlega gengið frá samningum um sölu á hlutafé fyrir um 350 milljónir króna. Kaupendur eru 20 íslenskir aðilar en stærsti einstaki fjárfestirinn er Valiant Fjárfestingar ehf., dótturfélag Sunda ehf. Jafnframt var kosin ný stjórn félagsins en stjórnarformaður hennar er Tanya Zharov.
Með nýju fjármagni hefur rekstrargrundvöllur ORF verið tryggður til að hagnýta þá tækni sem félagið hefur þróað á undanförnum fimm árum til að hefja framleiðslu og sölu á sérvirkum próteinum framleiddum í byggi. Í fyrstu leggur fyrirtækið áherslu á að framleiða sérvirk prótein fyrir rannsóknastofur og háskóla fyrst og fremst í Norður-Ameríku og Evrópu. Öll ræktun félagsins fyrir þessa framleiðslu fer fram í gróðurhúsum félagsins. Framleiðsla sérvirkra próteina er mun ódýrari í plöntum en í þeim framleiðslukerfum sem hingað til hafa verið notuð fyrir slík prótein. Ræktunar- og umhverfisaðstæður á Íslandi, vistvæn orka og möguleikar í ylrækt hérlendis skapa einstakar aðstæður til verðmætasköpunar í þessari grein.
Nýir fjárfestar í ORF telja mikil tækifæri felast í framleiðslu á sérvirkum próteinum til lyfjagerðar og rannsóknastarfsemi. Þróunarstarf fyrirtækisins á síðustu árum hefur verið árangursríkt og mun innan skamms skila framleiðsluvörum sem gera það að enn arðvænlegri og áhugaverðari fjárfestingakosti, segir Tanya Zharov nýkjörinn stjórnarformaður ORF.
Til baka