ORF Líftækni hf. í nýjar höfuðstöðvar í Víkurhvarfi 3, Kópavogi
ORF Líftækni er þessa dagana að flytja höfuðstöðvar sínar um set. Fyrirtækið hefur frá árinu 2007 verið með aðsetur í húsnæði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Keldnaholti en flytur nú í nýtt húsnæði í Víkurhvarfi 3 í Kópavogi. Mikil breyting verður á allri aðstöðu með flutningunum en nýja húsnæðið er mun stærra og verður sérsniðið að starfsemi fyrirtækisins.
Seinnipart föstudagsins 20. nóvember verða tölvu- og símkerfi flutt og mun samband við fyrirtækið verða stopult á meðan á því stendur. Mánudaginn 23. nóvember á flutningum að mestu að vera lokið og starfsemi að hefjast í nýjum höfuðstöðvum. Við vonumst til þess að flutningarnir hafi sem minnst áhrif á þjónustu fyrirtækisins.
Til baka