Íslensk orka - íslenskt hugvit - sérvirk prótein í sameindaræktun
Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, sem er síðasta föstudag í september. RANNÍS stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi. Vísindavaka 2009 verður haldin föstudaginn 25. september í Listasafni Reykjavíkur kl. 17:00-22:00 og er ORF Líftækni þátttakandi.
Sýning ORF Líftækni í ár ber heitið Íslensk orka - íslenskt hugvit - sérvirk prótein í sameindaræktun og er ætlað að varpa ljósi á hvernig fyrirtækið nýtir hugvit og einstakar aðstæður á Íslandi til famleiðslu á sérvirkum próteinum með byggi.
Verið velkomin á stefnumót við vísindamenn ORF Líftækni - hér gefst fágætt færi á spjalli við fagfólkið á bak við fyrirtækið.
http://www.rannis.is/visindavaka/forsida/
Til baka