ORF Líftækni og Sapphire Biosciences semja um dreifingu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi
ORF Líftækni og Sapphire Biosciences
hafa undirritað samkomulag um dreifingu á ISOkine vörulínu ORF Líftækni í
Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. ISOkineTM eru vaxtarþættir
(growth factors/cytokines), en þeir eru einkum notaðir við rannsóknir í
líf- og læknisfræði þar sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma,
sérhæfingu þeirra og hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative
medicine), til lyfjarannsókna og lækningameðferða. www.sapphirebioscience.com
Til baka