Tíuþúsundasta erfðatækniplantan frá ORF
Nýlega hélt ORF upp á þann merka áfanga að hafa framleitt í vefjaræktun 10.000 erfðatækniplöntur. Mikil vinna liggur að baki þessari framleiðslu en þessi góður árangur í erfðatækni byggs skipar ORF í fremstu röð á sínu sviði í heiminum. Þessar erfðatækniplöntur eru nú í ræktun í gróðurhúsum félagsins en þær verða notaðar fyrir framleiðslu á fjölda sérvirkra próteina fyrir rannsóknir- og þróunarstarfsemi á sviði læknavísinda og lyfjaframleiðslu.

Myndin sýnir nokkra af starfsmönnum ORF í erfðatæknideild með tíuþúsundustu plöntuna
Til baka