ORF Líftækni og Veritas Corp. í Japan semja um dreifingu á ISOkine vörulínunni
ORF Líftækni hefur samið um dreifingu á vörum sínum í Japan við Veritas Corp. sem er leiðandi dreifiaðili í Japan á vörum fyrir rannsóknavinnu, einkum í lífvísindum. Samningurinn nær til ISOkineTM vörulínunnar, sem eru vaxtarþættir (growth factors/cytokines). Vaxtarþættir eru einkum notaðir við líf- og læknisfræðirannsóknir þar sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma, sérhæfingu þeirra og hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative medicine), til lyfjarannsókna og lækningameðferða. www.veritastk.co.jp
Til baka