Vísindamenn gagnrýna þingsályktunartillögu um útiræktun erfðabreyttra lífvera
10. febrúar 2011
Þingsályktunartillagan og greinargerð með henni full af rangfærslum og lýsir algjörri vanþekkingu
37 vísindamenn við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hólaskóla, Matís, Matvælastofnun, Biopol og Íslenska erfðagreiningu gera harðorðar athugasemdir við þingsályktunartillögu um útiræktun á erfðabreyttum lífverum, sem nú liggur fyrir Alþingi, og mæla eindregið gegn því að tillagan verði samþykkt.
Í bréfi sem vísindamennirnir hafa skrifað Alþingi er bent á að í greinargerð með tillögunni komi fram algjör vanþekking á umfjöllunarefninu og að hún sé full af rangfærslum. Augljóst sé að höfundar hennar hafi ekki faglega þekkingu á viðfangsefninu og mjög takmarkaðan skilning á líffræði, þróunarfræði, erfðafræði eða eðli erfðabreyttra lífvera.
Vísindamennirnir benda á að í gildi eru ströng lög og reglur um erfðabreyttar lífverur hér á landi og þingsályktunartillagan því óþörf. Nú þegar starfi nefnd sem hafi það hlutverk að meta hverja erfðabreytingu fyrir sig og áhættuna af henni, á vísindalegum forsendum. Engin ástæða sé til að banna útiræktun erfðabreyttra lífvera þegar engin hætta er talin stafa af slíkri ræktun.
Vísindamennirnir telja þær áhyggjur sem lýst er í þingsályktunartillöginni bera vitni um vanþekkingu, misskilningi og fordóma eða byggja á hagsmunum þeirra sem telja erfðabreyttar lífverur ógna sér eða sinni starfsemi.
Í bréfinu eru höfundar þingsályktunartillögunnar hvattir til að leita álits hjá fræðimönnum sem hafa viðeigandi fagþekkingu og eru til þess bærir að afla og veita áreiðanlegar og hlutlausar upplýsingar um málefnið.
Enginn vísindamannana 37 sem ritar undir bréfið vinnur að rannsóknum sem miða að því að sleppa erfðabreyttum lífverum út í umhverfið og enginn þeirra á beinna persónulegra hagsmuna að gæta.
Viðbrögð við þingsályktun.pdf
Til baka