Tilraunareitur í Gunnarsholti eyðilagður
Skemmdarverk voru unnin á tilraunareit ORF Líftækni í Gunnarsholti helgina 15.-16. ágúst. Allt bygg í reitnum var klippt, rifið upp eða troðið niður, auk þess sem varnarbelti úr höfrum var líka skemmt.
Aðkoman að reitnum var slæm, varnarnet höfðu verið rifin og eyðilögð og kornið lá á víð og dreif. Í nafnlausum tölvupósti frá þeim er stóðu að þessum skemmdarverkum, sem sendur var fréttastofum miðvikudaginn 19. ágúst, koma fram beinar hótanir við alla þá sem nýta sér erfðabreytingar á Íslandi.
Björn Lárus Örvar framkvæmdastjóri ORF Líftækni, segir tjónið töluvert fyrir fyrirtækið, þar sem miklum tíma og fjármunum hafið verið varið í þennan fyrsta hluta tilraunarinnar sem nú hafi verið bundinn sviplegur endir á. Fyrirtækið hlaut í sumar leyfi Umhverfisstofnunar til útiræktunar í tilraunaskyni til ársins 2013.
Til baka