Samningur um samstarf sveitarfélagsins Skagafjarðar og ORF undirritaður
Á dögunum var undrritað samkomulag um samstarf sveitarfélagsins Skagafjarðar og ORF á sviði líftækni þar sem kannaðir verða kostir þess að taka upp sameindaræktun á afmörkuðu svæði í Skagafirði og próteinúrvinnslu í Skagafirði tengt þessari ræktun. Staðhættir í Skagafirði eru um margt einstaklega hentugir fyrir sameindaræktun á byggi, en undanfarin 3 ár hefur ORF í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands gert tilraunir með ræktun á því byggafbrigði sem ORF notar í sína tækni. Þessar tilraunir gefa ástæðu til að huga enn frekar að sameindaræktun í Skagafirði og úrvinnslu afurða úr bygginu. Samkvæmt samkomulaginu mun Sveitarfélagið Skagafjörður, að höfðu samráði við ORF, leggja til verkefnisstjóra tímabundið til að vinna bæði að markaðskönnun og viðskiptaáætlun í framhaldi af því. (sjá)

Á myndinni eru: aftari röð, Gunnar Bragi Sveinssonar, Bjarni Egilsson, Snorri Styrkársson úr Atvinnu- og ferðamálanefnd og Dr. Einar Mäntylä frá ORF. Fremi röð, Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri og Dr. Björn L. Örvar framkvæmdastjóri ORF.
Til baka