Umhverfisstofnun hélt annan kynningarfund á Grand Hóteli í gær um umsókn ORF Líftækni um leyfi til tilraunaræktunar á erfðabreyttu byggi í Gunnarsholti á Rangárvöllum. ORF lagði inn umsókn sína 3. mars síðastliðinn og Umhverfisstofnun (UST) hefur samkvæmt lögum 90 daga til þess að leita umsagna og leggja mat á öll gögn er varða umsóknina og hefði því átt að svara erindi ORF þann 3. júní síðastliðinn hið síðasta. Hins vegar ákvað UST að nýta sér heimild í reglugerðum til að framlengja þennan tíma til að kynna umsóknina fyrir almenningi. Fyrsti kynningarfundurinn um umsóknina, svokölluð grenndarkynning, var haldinn í Gunnarsholti þann 26. maí síðastliðinn og í kjölfar þess fundar framlengdi Umhverfisstofnun frest sinn til þess að svara til 16. júní. Með þessum fresti er í raun komið í veg fyrir að fyrirtækið geti gert þessar tilraunir í ár, því afar ólíklegt verður að teljast að hægt verði að ná uppskeru í lok sumars þegar sáð er svo seint.
Vel var mætt á kynningarfundinn í gær og fluttu fulltrúar Umhverfisstofnunar, umsagnaraðila og ORF Líftækni erindi sín þar.
Karl Karlsson, sérfræðingur á Umhverfisstofnun kynnti lagalegt umhverfi stofnunarinnar og þær reglur sem gilda um málsmeðferð af þessu tagi.
Dr. Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri og einn stofnenda ORF Líftækni kynnti fyrirtækið, fyrirætlanir þess og forsendur umsóknarinnar.
Eva Benediktsdóttir, formaður Ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur kynnti nefndina og álit meirihluta hennar. Sjö nefndarmenn skiluðu sameiginlegu áliti og mæltu með umsókninni, tveir nefndarmenn skiluðu séráliti og mæltu gegn.
Gunnar Gunnarsson, meðlimur Ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur og starfsmaður vottunarstofunnar Tún, gerði grein fyrir séráliti sínu.
Jón Á. Kalmansson, heimspekingur og fulltrúi Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands í Ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur gerði grein fyrir séráliti sínu.
Trausti Baldursson, starfsmaður Náttúrufræðistofnunar Íslands, gerði grein fyrir afstöðu stofnunarinnar til umsóknar ORF, en stofnunin leggst ekki gegn því að leyfi til útiræktunar verði leyft.
Þá gafst einnig góður tími til umræðna og voru margar spurningar bornar upp af fundarmönnum. Kom í ljós að nokkurs misskilnings gætir meðal andstæðinga ræktunar erfðabreyttra plantna um öryggi og eðli ræktunarinnar og gafst á fundinum kærkomið tækifæri til þess að leiðrétta ýmsar rangfærslur sem komið hafa fram í fjölmiðlum að undanförnu.
Karl Karlsson, Umhverfisstofnun
Dr. Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni
Eva Benediktsdóttir, meirihlutaálit
Gunnar Gunnarsson, sérálit
Trausti Baldursson, Náttúrufræðistofnun
Ljósmynd: Kristinn Már Ársælsson