Umhverfisstofnun samþykkir umsókn ORF um útiræktun í tilraunaskyni
Umhverfisstofnun hefur samþykkt að veita ORF Líftækni hf. leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi í tilraunaskyni á tímabilinu 2009-2013. Niðurstaða Umhverfisstofnunar er sett fram í greinargerð sem birt er ífrétt á vef Umhverfisstofnunar. Í greinargerðinni segir meðal annars:
„Umhverfisstofnun telur með vísun til umsagna Náttúrufræðistofnunar Íslands og Ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur og að undangengnu mati á öðrum fyrirliggjandi gögnum að hverfandi líkur séu fyrir hendi á útbreiðslu hins erfðabreytta byggs út fyrir tilraunareit og á mögulegri víxlfrjóvgun erfðabreytta byggsins við annað bygg eða plöntur í nágrenni sleppistaðar. Jafnframt telur Umhverfisstofnun að hverfandi líkur séu á að þau græðisprótein sem fyrirhugað er að nota skv. framkominni umsókn muni valda neikvæðum áhrifum á lífríki á ræktunarstað eða nágrenni hans. Umhverfisstofnun telur einnig að aðgerðir til að tryggja afmörkun ræktunarreits sé fullnægjandi með þeim skilyrðum sem stofnunin setur og koma fram í niðurstöðum.“
Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni hf. er að vonum ánægður með niðurstöðuna.
„Við fögnum að sjálfsögðu ákvörðun Umhverfisstofnunar um að veita ORF Líftækni leyfi til tilraunaræktunar í Gunnarsholti. Það hefði komið okkur mjög á óvart hefði umsókninni verið hafnað enda hafa engin haldbær rök komið fram, sem styðja við slíka ákvörðun. Við metum það svo að Umhverfisstofnun hafi staðið afar faglega að verki við mat á umsókn ORFs, tekið sér góðan tíma og staðið vel að opinberri kynningu á verkefninu. Hér hefur fyrst og fremst verið stuðst við faglegt mat umsagnaraðila með sérþekkingu á viðfangsefninu, meðal annars hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og innan Háskóla Íslands, sem stofnunin hefur greiðan aðgang að. Við munum nú hefja sáningu sem fyrst, enda er tíminn orðinn mjög naumur. Það er hins vegar ljóst að úr þessu er varla að búast við uppskeru í haust. Við verðum þess í stað að skoða aðra þætti sem snúa að þessari tilraun. Vonandi getur sameindaræktun, eins og hér um ræðir, markað nýtt upphaf að frekari tækifærum til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni.“
Til baka