Heitið
Nafn fyrirtækisins „ORF“ hefur tilvísanir í rammíslenskan uppruna
fyrirtækisins og uppskerutengd amboð, orfið, sem var lykiltæki í
landbúnaði til forna. ORF hefur ekki síður tengingu við erfðavísindin á
alþjóðavísu: ORF er stytting á „Open Reading Frame“ sem er heiti á svokallaðri opinni lesröð
í geninu en það er sá hluti gensins sem þýddur er yfir í prótein. Heiti
fyrirtækisins vísar því allt í senn til uppskeru, gena og próteina.
Vörumerki fyrirtækisins skírskotar til byggsprota og DNA helix.