Hjörtur Hjartar, stjórnarformaður
Rekstrarhagfræðingur og stjórnarformaður FIVE Invest ehf. Hefur starfað í nær 20 ár í Evrópu, meðal annars sem framkvæmdastjóri og í stjórnum dótturfélaga Eimskips, nú síðustu tvö ár í stjórn orkufyrirtækja í Króatíu og Bosníu. Er núna sérfræðingur hjá Landsel ehf.
Jón Kristjánsson, vara formaður stjórnar
Jón er fjárfestir sem leitt hefur og tekið þátt í fjölda fjárfestingaverkefna og fyrirtækjum, bæði hérlendis og erlendis. Jón hefur setið í stjórn ORF síðan 2006.
Jón Zimsen
Lyfjafræðingur (cand. pharm.) frá Danmarks Farmaceutiske Höjskole og skógarbóndi. Var stjórnarmaður í lyfjafyrirtækinu Delta hf.
Helga Valfells
Helga Valfells er framkvæmdastjóri NSA Ventures og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Helga hefur unnið á sviði markaðs- og fjármála og hefur m.a. sinnt störfum fyrir Íslandsbanka, Estée Lauder UK, Merrill Lynch International Europe og Útflutningsráð Íslands, en þar vann hún með fjölda nýsköpunarfyrirtækja sem stefndu á útflutning. Helga var einnig sjálfstætt starfandi ráðgjafi en hefur unnið hjá NSA Ventures síðan 2009. Hún er stjórnarmaður hjá Transmit og Innovit og stjórnarformaður Mentor, Gagnavörslunnar og Frumtaks.
Helga er með BA gráðu frá Harvard University og MBA frá London Business School.
Elín Soffía Ólafsdóttir
Ph.D., prófessor í lyfja- og efnafræði náttúruefna við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Elín hefur auk kennslu og rannsókna, gegnt stöðu deildarforseta lyfjafræðideildar og ýmsum öðrum stjórnunar- og trúnaðarstörfum innan og utan Háskóla Íslands.