Störf í boði
ORF Líftækni hf. er ungt og vaxandi fyrirtæki, þar sem frumkvöðlaandi ríkir með mikla möguleika á framþróun í starfi fyrir dugmikla og áhugasama starfsmenn.
Fyrirtækið er leiðandi í framleiðslu sérvirkra próteina af miklum gæðum fyrir læknisrannsóknir, og líftækniiðnað. Með þróun og nýtingu á framleiðsluaðferð sinni, sameindaræktun í byggi, stefnir ORF markvisst að enn frekari uppbyggingu hátæknifyrirtækis í fremstu röð á alþjóðlegum markaði, með áherslu á að selja afurðir sínar, vaxtarþætti, til rannsóknastofa á sviði frumurannsókna (t.d. stofnfrumurannsókna), frumuræktunar og þróunar vefjasmíði (regenerative medicine) undir vörumerkinu ISOkine™.
Áhugasömum einstaklingum með menntun eða reynslu á sviði próteintækni, sameinda- eða frumulíffræði, sem vilja taka þátt í uppbyggingu og þróunarstarfi hjá spennandi fyrirtæki er bent á að senda umsókn með ferilskrá til starf@orf.is.