Fyrirvarar um ábyrgð
Þessi heimasíða er einungis
ætluð til upplýsinga og fróðleiks. ORF Líftækni hf. leggur sig fram um
að veita greinagóðar upplýsingar á vefsíðu sinni en engin ábyrgð er hins
vegar tekin á því hvort upplýsingarnar séu nákvæmlega réttar eða
tæmandi. Einkum ber að gæta þess að upplýsingar kunna að vera
ófullkomnar, í þeim kunna að leynast villur og þær kunna að hafa úrelst.
Notendur vefsíðna eru því alltaf hvattir til að sannreyna upplýsingar
annars staðar. Hugleiðingum um framtíðina, framtíðarspám og
framtíðaráætlunum ber að taka með viðeigandi fyrirvara. ORF Líftækni hf.
ber ekki ábyrgð á tjóni sem notandi vefs fyrirtækisins og/eða þriðji
aðili kann að verða fyrir vegna notkunar á vefnum og þeim upplýsingum
sem þar eru látnar í té. ORF Líftækni hf. ber hvorki ábyrgð á tjóni sem
rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef fyrirtækisins né tjóni sem
rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri
tíma.