Ræktun
Einn af kostum Orfeus™ próteinframleiðslukerfis ORF
Líftækni, er mikill sveigjanleiki í skala framleiðslunnar. Það hentar til
framleiðslu á hágæðavöru á litlu magni en einnig til iðnaðarframleiðslu á
stórum skala.
Í Grænu smiðjunni í Grindavík, hátæknigróðurhúsi ORF
Líftækni, fer fram fyrsta ræktun á öllu nýju byggi fyrirtækisins og öll ræktun
á byggi sem myndar mjög verðmæt prótein sem ekki þarf að framleiða í miklu
magni. Þar er t.d. ræktað allt það bygg sem framleiðir ISOkine™ vaxtarþætti
fyrirtækisins fyrir margvíslegar læknisfræðilegar rannsóknir. Byggið er ræktað
í vatnsrækt í skilgreindri næringarefnalausn, á færiböndum og öllum aðstæðum
við ræktunina er stýrt nákvæmlega.
Fyrir prótein sem framleiða þarf í meira magni er byggið
ræktað í hefðbundari gróðurhúsum, m.a. á
Kleppjárnsreykjum. Fyrir framleiðslu á iðnaðarskala stefnir ORF Líftækni að því
að byggja upp hér á landi umfangsmikla akuryrkju á erfðabreyttu byggi til
framleiðslu á verðmætum próteinum til útflutnings, í samvinnu við íslenska
bændur og fleiri aðila. Núverandi akuryrkja fyrirtækisins fer fram í
Gunnarsholti á Rangárvöllum.