Akuryrkja
Kostir Orfeus™ framleiðslukerfisins eru ótvíræðir þegar
framleiða þarf mikið magn sérvirkra próteina. Í þeim tilgangi stefnir ORF
Líftækni að því að byggja upp á Íslandi umfangsmikla akuryrkju og
úrvinnsluiðnað í samvinnu við íslenska byggbændur og fleiri aðila.
ORF Líftækni ræktar erfðabreytt bygg á akri í Gunnarsholti á
Rangárvöllum, samkvæmt leyfi sem Umhverfisstofnun veitti árið 2009 og gildir
til ársins 2013. Tilraunir með slíka ræktun hafa átt sér stað í samvinnu við
Landbúnaðarháskóla Íslands frá árinu 2003.
Ein af ástæðunum fyrir því að bygg varð fyrir valinu sem
framleiðslujurt ORF Líftækni er líffræðileg einangrun byggs hér á landi. Yfir
þúsunda ára reynsla er af því að bygg vex ekki villt á Íslandi og hér vaxa
engar jurtir sem bygg getur blandast við. Niðurstöður tilrauna sýna að byggfræ
dreifist lítið frá akri, jafnvel í aftakaveðri. Sjálffrjóvgun er bygginu
eðlislæg, þ.e. það frjóvgast af sínu eigin frjódufti og með því sker það sig úr
flestum öðrum plöntum sem nota frekar víxlfrjóvgun og dreifa frjódufti sínu til
annarra plantna sömu tegundar. Einhverjar viðamestu tilraunir sem gerðar hafa
verið á víxlfrjóvgun byggs í heiminum voru gerðar á vegum á vegum
Landbúnaðarháskóla Íslands 2002-2006. Í ályktunum vísindamanna
Landbúnaðarháskólans út frá niðurstöðum þessara rannsókna kemur fram að ræktun
á erfðabreyttu byggi sé algjörlega örugg á Íslandi sé viðeigandi áhættustýringu
beitt við ræktunina.
Í Orfeus™ framleiðslukerfi ORF Líftækni er uppsöfnun
viðkomandi sérvirks próteins bundin við þroskun fræsins og það er ekki myndað í
öðrum hlutum plöntunnar. Þessi prótein eru í öllu kjöti og sumir hverjir í
mjólk. Þau eru mjög viðkvæm í framleiðslu og brotna auðveldlega niður eftir
myndun í byggfræinu, sé það ekki meðhöndlað sérstaklega. ORF Líftækni
framleiðir ekki matvæli eða fóður, en í meltingarvegi manna og dýra væru
sérvirku próteinin brotin niður eins og öll önnur prótein.
Með þeim skilyrðum sem ORF fylgir í ræktun á erfðabreyttu
byggi, m.a. hvað varðar fjarlægð frá annarri byggræktun, umgengni við akur og
uppskeru er framleiðslukerfi fyrirtækisins líffræðilega og vistfræðilega
einangrað hér á landi. Þessi afmörkun gefur ORF gott forskot í samkeppni við
önnur fyrirtæki sem stunda akuryrkju fyrir framleiðslu á sérvirkum próteinum,
enda hefur nálgun ORF í sameindaræktun á akri hlotið hrós erlendra
reglugerðaryfirvalda fyrir heildstæða lausn og áherslu á afmörkun og öryggi.
Örugg ræktun áerfðabreyttu byggi – Grein eftir Björn Örvar og Einar Mäntylä í Fréttablaðinu24. ágúst 2010
www.althingi.is/lagas/137/1996018.html
www.althingi.is/altext/stjt/2010.083.html
www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/b7fd33650490f8cf00256a07003476bb/521ebb291fc0091c00256a08003264db?OpenDocument
www.ust.is/media/fraedsluefni/pdf-skjol/Orf_Liftaekni.pdf