Bygg
Bygg var ein fyrsta korntegundin sem maðurinn tók til ræktunar fyrir
um 10.000 árum síðan og er enn mikilvæg nytjaplanta. Bygg er í fjórða
sæti yfir uppskerumestu korntegundirnar og gefur um 140 milljónir tonna
uppskeru í heiminum ári. Það er ræktað um nánast allan heim fyrir utan
hitabeltið. Bygg er fyrst og fremst notað sem dýrafóður, en einnig
bruggað í malt fyrir framleiðslu á bjór og viskí, það er notað til
manneldis, til framleiðslu á sterkju o.fl.
Í dag eru til eru þúsundir mismunandi afbrigða af byggi. Þeim má
skipta í svokallað vetrarbygg sem sáð er að hausti og vorbygg sem sáð er
að vori.
Ísland er á norðurmörkum byggræktar í heiminum sökum stutts sumars og
nánast allt sáðkorn sem notað er hér á landi er innflutt. Einungis
vorbygg er ræktað á Íslandi. Skilyrði til byggræktar eru best syðst á
landinu og í innsveitum norðanlands. Hin fjöldamörgu yrki sem prófuð
hafa verið hér á landi henta þó misvel eftir aðstæðum á hverjum stað.
Almennt er byggi sáð í lok apríl eða byrjun maí, það blómgast í byrjun
ágústs og er uppskorið í september. Bygg vex ekki villt hér á landi
fremur en annars staðar í N-Evrópu. Það á enga nána ættingja í íslensku
flórunni og getur ekki æxlast við íslenskar plöntur.
Það byggyrki sem ORF Líftækni notar í sinni framleiðslu heitir Golden
Promise. Það er meðal fjölmargra plöntuyrkja sem var þróað undir stjórn
Björns Sigurbjörnssonar við Alþjóða kjarnorkumálastofnunina í Vín á
sjöunda áratug síðustu aldar. Það hefur mikið verið notað í Skotlandi
til maltframleiðslu. Það hentar ekki til landbúnaðarframleiðslu hér á
landi, það þroskast seinna en það bygg sem ræktað er af íslenskum bændum
og hefur ekki sama blómgunartíma og annað bygg sem hér er ræktað.