
Græn
smiðja
Ræktun byggs ORF Líftækni sem notað er til að framleiða
ISOkine™ vaxtarþætti, svo og öll ræktun á þróunarstigi og fyrstu skrefum
framleiðslu, fer fram í Grænu smiðjunni í Grindavík. Þar hefur ORF Líftækni
reist 2000 fermetra gróðurhús undir starfsemi sína þar sem starfa fimm
starfsmenn. Græna smiðjan er eitt fullkomnasta gróðurhús landsins. Byggið er
ræktað með mikill sjálfvirkni í vatnsrækt á færiböndum. Hitastigi, birtu, og
rakastigi er stjórnað nákvæmlega til að aðstæður fyrir ræktunina séu sem
bestar.
Undirbúningur er hafinn að því að Græna smiðjan uppfylli
kröfur um framleiðslu próteina fyrir lyfjaþróun og lyfjagerð. Sú framleiðsla
mun fara fara fram í hluta hússins. Í Grindavík er nægan jarðvarma að fá og
rafmagn til lýsingar og stækkunarmöguleikar miklir. Græna smiðjan í Grindavík
getur því orðið aðsetur framtíðarlyfjaframleiðslu fyrir heimsmarkað á
próteinlyfjum framleiddum í Orfeus™ kerfinu.