Orfeus™ kerfið
Orfeus™ er einkaleyfisbundið og öruggt kerfi sem vísindamenn
ORF Líftækni hafa þróað til að framleiða sérvirk prótein fyrir
læknisrannsóknir, lyf og iðnað í erfðabreyttu byggi.
Sérvirk prótein eru
prótein með sérhæfða líffræðilega virkni. Orfeus™ kerfið byggir á því að nýta
fræ byggplöntunnar sem smiðju fyrir sérvirk prótein. Slík prótein eru flókin að
byggingu og þau er einungis hægt að framleiða í lifandi frumum. Fram til þessa
hafa slík prótein fyrst og fremst verið framleidd í erfðabreyttum E.coli bakteríum, gersveppum og
spendýrafrumum, en framleiðsla í slíkum kerfum er afar kostnaðarsöm og erfitt
er að auka framleiðslugetu þeirra að ráði. Auk þess getur notkun afurða úr slíkum
kerfum valdið ýmsum vandamálum, t.d. vegna mögulegra smitefna.
Orfeus™ kerfið er afrakstur öflugs vísinda- og þróunarstarfs
undanfarin ár, en með því er hægt að lækka verulega framleiðslukostnað þessara
próteina og auka gæði þeirra. Sveigjanleiki Orfeus™ kerfisins gerir ORF Líftækni
kleift að mæta þörfum mismunandi markaða og óskum viðskiptavina.
Tæknin sem Orfeus™ kerfið byggir á felst í því að smíðað er
nýtt bygggen sem hefur að geyma upplýsingar um hvernig mynda eigi ákveðið
prótein sem áhugi er á að framleiða. Þessu geni er komið fyrir í byggi á þann
hátt að aðeins er kveikt á því við fræþroskun og próteinið er því aðeins myndað
í fræjum. Við þetta verður til nýtt yrki af bygginu sem er eins að öllu leyti
og annað bygg nema að það framleiðir þetta ákveðna prótein í fræjum sínum.
Eftir uppskeru eru sérvirku próteinin fínhreinsuð úr fræjunum með nýjustu tækni
og gæðaprófanir gerðar áður en að sölu kemur.
Orfeus™:
- Afkastamikið og öruggt framleiðslukerfi
- Uppskölun er einföld og hagkvæm
- Hreinar afurðir úr hreinni náttúru
- Afurðirnar eru öruggar og innihalda engin smitefni úr
dýraríkinu
- Geymsla próteinanna er einföld og ódýr í þurrkuðu fræi
- Sveigjanleiki í
magni (µg-mg-g-kg)
- Rétt myndbygging próteina tryggð með fullkomnu próteinframleiðslukerfi
heilkjarna lífveru