Öryggi og gæði
Í Orfeus™ kerfinu eru sérvirk prótein framleidd í erfðabreyttu
byggi. Bygg hefur verið ræktað til manneldis um aldir, það inniheldur ekki
skaðleg efni og er viðurkennt í matvæla-
og snyrtivöruiðnaði sem örugg planta. Í hefðbundinni framleiðslu á sérvirkum
próteinum í dag eru erfðabreyttar bakteríur, gersveppir eða dýrafrumur notaðar sem
verksmiðjur, en það getur skapað ýmis vandamál er varða öryggi og hreinleika afurðanna.
Þessi vandamál eru ekki til staðar í Orfeus™ kerfinu.
Þau prótein sem framleidd
eru í Orfeus™ kerfinu eru aðeins mynduð í fræhvítu byggsins. Fræhvítan er
efnafræðilega mjög einfalt og stöðugt umhverfi . Þar er ekki að finna nein
eiturefni eða smitefni úr dýrum og þar er lítið af ensímum sem brjóta niður
prótein. Í raun er fræhvítan frá náttúrunnar hendi sérhannaður, öruggur og
hreinn geymslustaður fyrir prótein. Uppsöfnun próteina í fræinu tryggir því gæði
og endingu viðkvæmra og erfiðra próteina. Rétt myndbygging próteina sem
framleidd eru í kerfinu er tryggð þar sem byggið býr yfir fullkomnu
próteinframleiðslukerfi heilkjarna lífveru.