Hvað er DNA?
Rannsóknir um miðja síðustu öld leiddu í ljós að allt erfðaefni er svokallað DNA (deoxyribonucleic acid), eða kjarnsýra. Erfðaefnið ber eiginleika á milli kynslóðanna.
Hvað eru prótein?
Með hæfilegri einföldun má segja að hver gen ákvarði röð amínósýra í
einu próteini. Genin geyma bara upplýsingar en það eru próteinin sem eru
verkfæri frumunnar sem sinna hinum ýmsu störfum frumunnar.
Hvað eru gen?
Gen, eða erfðavísar, geyma upplýsingar um einkenni eða erfðaeiginleika
lífvera. Til einföldunar má segja að hvert gen geymi upplýsingar um
byggingu eins ákveðins próteins.
Hvað eru erfðabreyttar plöntur?
Hugtakið erfðabreytt planta er notað yfir kynbættar plöntur þar sem
nýrri tækni hefur verið beitt til að búa til nýtt afbrigði eða yrki,
þ.e. plöntu með nýjan eiginleika. Með þessari tækni eru ákveðin eru gen
valin og einangruð úr einni lífveru og flutt yfir í nytjaplöntu sem ekki
er með þetta ákveðna gen fyrir.
Hver er munurinn á erfðabreyttum og kynbættum plöntum?
Þegar erfðabreytt planta er búin til eru oftast tvö ný gen flutt yfir í
nytjaplöntuna, en þegar um hefðbundnar kynbætur er að ræða getur fjöldi
nýrra gena í nytjaplöntunni skipt tugum eða jafnvel hundruðum.
Eru „erfðabreytt” gen og prótein öðruvísin en „önnur” gen og prótein?
Öll gen, allt erfðaefni, eru búin til úr sömu, fjórum grunneiningunum,
þ.e. A-kirnum, T-kirnum, C-kirnum og G-kirnum, en þetta er efnasameindir
sem raða sér í keðju og mynda þannig erfðaefnið.
Er ræktun á erfðabreyttu byggi örugg?
Já. Ein af ástæðunum fyrir því að bygg varð fyrir valinu sem
framleiðslujurt ORF Líftækni er líffræðileg einangrun byggs hér á landi.
Yfir þúsunda ára reynsla er af því að bygg vex ekki villt á Íslandi og
hér vaxa engar jurtir sem bygg getur blandast við.