Vaxtarþættir
Vaxtarþættir (e. growth factors / cytokines) eru prótein sem stjórna frumuskiptingum og frumusérhæfingu í líkamanum. Til eru margar ólíkar gerðir af vaxtarþáttum en þeir eiga það sameiginlegt að ýmist örva eða hindra ákveðin líffræðileg ferli. Vaxtarþættir gegna meðal annars lykilhlutverki í ónæmiskerfinu og í allri þroskun lífvera.
Vaxtarþættir eru notaðir í nánast öllum læknis- og líffræðilegum rannsóknum sem byggja á frumuræktun. Má þar nefna rannsóknir á stofnfrumum, krabbameinsrannsóknir, ónæmisfræðirannsóknir, vefjasmíði (e. regenerative medicine), lyfjarannsóknir og fleira. Margir vaxtarþættir eru einnig mikilvæg lyf gegn alvarlegum sjúkdómum og notkun þeirra fer vaxandi í snyrtivörum.
ORF Líftækni framleiðir ISOkine™ vaxtarþætti fyrir rannsóknageirann og DERMOkine™ vaxtarþætti fyrir snyrtivöruiðnaðinn.