Vörur
ORF Líftækni framleiðir og selur vaxtarþætti sem framleiddir eru í byggi undir vöruheitinu ISOkine™.
ISOkine™ vaxtarþættir eru notaðir við fjölbreyttar líf- og læknisfræðirannsóknir um allan heim. Fyrirtækið stefnir að því að framleiða önnur sérvirk prótein, m.a. fyrir lyfjaþróun og lyfjagerð og ýmis konar iðnaðarprótein.
Sif Cosmetics, dótturfyrirtæki ORF Líftækni, framleiðir og selur snyrtivörur sem innihalda vaxtarþætti undir heitinu BIOEFFECT™.