EGF BIOeffect™ húðdropar
EGF BIOeffect™ húðdroparnir eru byltingarkennd nýjung á snyrtivörumarkaði. Þeir eru framleiddir af Sif Cosmetics, dótturfyrirtæki ORF Líftækni, og komu á markað í maí 2010. Húðdroparnir innihalda EGF frumuvaka sem stuðlar að endurnýjun húðfruma. Þeir veita heilbrigðara og frískara útlit, eru rakagefandi og græðandi og sporna gegn öldrun húðarinnar.
EGF frumuvakinn sem notaður er í EGF BIOeffect™ húðdropana er framleiddur í erfðabreyttu byggi af ORF Líftækni. Þessi græna tækni gerir mögulegt að nota hærri styrk af virkari frumuvaka í nýju húðdropana en áður hefur þekkst í snyrtivörum.