ISOkine™ vaxtarþættir
ORF Líftækni framleiðir mikinn fjölda vaxtarþátta fyrir líf-
og læknisfræðirannsóknir undir vörumerkinu ISOkine™. Með heitinu ISOkine™ er
vísað til gæðastjórnunar og gæða afurðanna og til enska orðsins yfir vaxtarþætti
(cytokine).
Vísindamenn um allan heim nota ISOkine™ vaxtarþætti við grunnrannsóknir
á boðskiptum frumna, sérhæfingu þeirra og hagnýtingu fyrir vefjasmíði
(regenerative medicine), til lyfjarannsókna og lækningameðferða. Helstu
notendur ISOkine™ vaxtarþátta eru rannsóknahópar innan háskóla,
rannsóknastofnana, lyfjaþróunarfyrirtækja og líftæknifyrirtækja sem stunda
rannsóknir á sviði frumulíffræði. Aðrir mögulegir notendur eru t.d. fyrirtæki
sem framleiða sérvirk frumuæti fyrir aðila í læknisrannsóknum og lyfjafyrirtæki
sem framleiða próteinilyf.
ORF Líftækni býður nú viðskiptavinum sínum yfir
fjörtíu ISOkine™ vaxtarþætti og yfir eitthundrað vaxtarþættir eru að auki á mismunandi
stigum framleiðslu. Öll ræktun tengd framleiðslu á ISOkine™ vaxtarþáttum fer
fram í Grænu smiðjunni, hátæknigróðurhúsi ORF Líftækni í Grindavík.