ORF Líftækni hlýtur Eurostars rannsóknastyrk
Nýverið hlaut ORF Líftækni hf. ásamt samstarfsaðilum sínum eftirsóttan rannsóknastyrk hinnar Evrópsku Eurostars áætlunar. ORF Líftækni leiðir verkefnið sem snýr að þróun nýrrar tækni við úrvinnslu próteina sem hefur burði til þess að verða bæði einfaldari og hagkvæmari en áður þekkist. Þetta er í annað sinn sem íslenskur aðili hlýtur styrk úr Eurostars áætluninni.
Meira..
Vaxtarþáttur úr Grænni smiðju ORF í Grindavík notaður í húðvörur
Fyrstu húðvörurnar með vaxtarþætti sem framleiddur er í Grænni smiðju ORF Líftækni í Grindavík verða brátt settar á markað í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjum samningi ORF Líftækni og bandaríska húðvörufyrirtækisins Ronald L. Moy, MD. Inc.
Samningur fyrirtækjanna er til þriggja ára og hefur verulega þýðingu fyrir ORF Líftækni sem mun bæta við sig starfsfólki í kjölfarið og auka framleiðslugetu sína. Þetta er í fyrsta skipti sem vaxtarþættir, framleiddir í plöntum, eru notaðir í húðvörur.
Meira..
ORF Líftækni hf. í nýjar höfuðstöðvar í Víkurhvarfi 3, Kópavogi
ORF Líftækni er þessa dagana að flytja höfuðstöðvar sínar um set. Fyrirtækið hefur frá árinu 2007 verið með aðsetur í húsnæði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Keldnaholti en flytur nú í nýtt húsnæði í Víkurhvarfi 3 í Kópavogi. Mikil breyting verður á allri aðstöðu með flutningunum en nýja húsnæðið er mun stærra og verður sérsniðið að starfsemi fyrirtækisins.
Meira..
ORF Líftækni og Háskóli Íslands undirrita samstarfssamning
ORF Líftækni hf. og Háskóli Íslands hafa undirritað samning um samstarf á sviði rannsókna og tækniþróunar á lífvirkum próteinum.
Meira..
Kynningarfundur vegna umsóknar ORF um leyfi til útiræktunar
Umhverfisstofnun hélt annan kynningarfund á Grand Hóteli í gær um umsókn ORF Líftækni um leyfi til tilraunaræktunar á erfðabreyttu byggi í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Vel var mætt á kynningarfundinn og fluttu fulltrúar Umhverfisstofnunar, umsagnaraðila og ORF Líftækni erindi sín þar.
Meira..
Íslensk orka - íslenskt hugvit - sérvirk prótein í sameindaræktun
ORF Líftækni er þátttakandi í Vísindavöku 2009, sem er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, föstudaginn 25. september, í Listasafni Reykjavíkur kl. 17:00-22:00.
Meira..
Varúðarráðstafanir og eftirlit með tilraunareit útiræktunar í Gunnarsholti sumarið 2009
ORF Líftækni hlaut leyfi Umhverfisstofnunar fyrr í sumar til þess að rækta erfðabreytt bygg utandyra í tilraunaskyni og var byggi sáð í tæplega 80 fermetra reit, þar af um helmingurinn erfðabreytt, hinn helmingurinn óerfðabreytt.
Meira..
Tilraunareitur í Gunnarsholti eyðilagður
Skemmdarverk voru unnin á tilraunareit ORF Líftækni í Gunnarsholti helgina 15.-16. ágúst. Allt bygg í reitnum var klippt, rifið upp eða troðið niður, auk þess sem varnarbelti úr höfrum var líka skemmt.
Meira..
Umhverfisstofnun samþykkir umsókn ORF um útiræktun í tilraunaskyni
Umhverfisstofnun hefur samþykkt að veita ORF Líftækni hf. leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi í tilraunaskyni á tímabilinu 2009-2013. Niðurstaða Umhverfisstofnunar er sett fram í greinargerð sem birt er í frétt á vef Umhverfisstofnunar.
Meira..
Forseti Íslands heimsækir Grænu smiðjuna
Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson heimsótti Grænu smiðjuna hjá ORF Líftækni fimmtudaginn 5. mars.
Meira..
ORF Líftækni og Sapphire Biosciences semja um dreifingu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi
ORF Líftækni og Sapphire Biosciences
hafa undirritað samkomulag um dreifingu á ISOkine vörulínu ORF Líftækni í
Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. ISOkineTM eru vaxtarþættir
(growth factors/cytokines), en þeir eru einkum notaðir við rannsóknir í
líf- og læknisfræði þar sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma,
sérhæfingu þeirra og hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative
medicine), til lyfjarannsókna og lækningameðferða. www.sapphirebioscience.com
Meira..
Umsókn um útiræktun byggs í Gunnarsholti
ORF Líftækni hefur undanfarin ár verið að þróa aðferð til framleiðslu á sérvirkum próteinum í byggplöntum fyrir læknisrannsóknir, lyf og iðnað. ORF Líftækni hvorki framleiðir né þróar erfðabreytt matvæli eða fóður og hefur aldrei gert. Fyrirtækið hefur nú sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar til ræktunar erfðabreytts byggs á akri, til að gera samanburð á byggyrkjum, úrvinnslu, hreinsun og fullvinnslu á próteinum til iðnaðarnota.
Meira..
ORF Líftækni semur við Voden Medical um dreifingu á Ítalíu
ORF Líftækni færir enn út kvíarnar og hefur nýverið undirritað samkomulag við Voden Medical um dreifingu á vörum fyrirtækisins á Ítalíu.
Meira..
ORF Líftækni semur við Cambridge Bioscience Ltd.
ORF Líftækni hefur samið við fyrirtækið
Cambridge Bioscience Ltd. um dreifingu á ISOkine vörulínu fyrirtækisins á
Bretlandseyjum og Írlandi. Cambridge Bioscience Ltd. er leiðandi
dreifiaðili á vörum fyrir rannsóknavinnu, einkum í lífvísindum.
Samningurinn nær til ISOkineTM
vörulínunnar, sem eru vaxtarþættir (growth factors/cytokines).
Vaxtarþættir eru einkum notaðir við líf- og læknisfræðirannsóknir þar
sem aflað er grunnþekkingar á boðskiptum fruma, sérhæfingu þeirra og
hagnýtingu fyrir vefjasmíði (regenerative medicine), til lyfjarannsókna
og lækningameðferða. www.bioscience.co.uk
Meira..
ORF Líftækni á sýningunni Reykjanes 2009 - Þekking, orka, tækifæri
Sýningin Reykjanes 2009 verður haldin í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og þar verður kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu.
Meira..
ORF Líftækni semur um dreifingu í Þýskalandi, Sviss og Austurríki við CellSystems
ORF Líftækni og Cellsystems Biotechnologie Vertrieb GmbH undirrituðu nýlega samning um dreifingu á ISOkineTM vörulínu fyrirtækisins í Þýskalandi, Sviss og Austurríki.
Meira..
ORF Líftækni og Veritas Corp. í Japan semja um dreifingu á ISOkine vörulínunni
ORF Líftækni hefur samið um dreifingu á vörum sínum í Japan við Veritas Corp. sem er leiðandi dreifiaðili í Japan á vörum fyrir rannsóknavinnu, einkum í lífvísindum.
Meira..
Björk hvetur ORF til dáða.
Tónlistarkonan Björk hefur undanfarið verið að kynna sér tækifæri í nýsköpun og hvernig auka megi fjölbreytni í atvinnulífi íslendinga með áherslu á sjálfbærni og grænan iðnað. Á dögunum heimsótti Björk fyrirtækið ORF og kynnti sér starfsemi þess.
Meira..
ORF Líftækni semur um dreifingu á vörum í Kóreu við Bio-Medical Science Co.
ORF Líftækni hefur samið við Bio-Medical Science Co. (BMS) um dreifingu á ISOkineTM vörulínu fyrirtækisins í Kóreu.
Meira..
ORF Líftækni opnar hátæknigróðurhúsið Grænu smiðjuna í Grindavík
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tók hátæknigróðurhús ORF Líftækni, Grænu smiðjuna, formlega í notkun við hátíðlega athöfn í dag, fimmtudaginn 8. maí 2008, í Grindavík.
Meira..
ORF Líftækni hlýtur Nýsköpunarverðlaunin 2008
ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2008 þann 28. febrúar s.l. sem veitt eru af Rannís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Útflutningsráði.
Meira..
ORF Líftækni gerir tímamótasamning
Nýlega skrifaði ORF Líftækni hf undir samkomulag við kínverska lyfjafyrirtækið Sinopharm.
Meira..
Ný heimasíða opnuð á sumardaginn fyrsta
Á sumardaginn fyrsta opnaði ORF endurbætta útgáfu af íslensku heimasíðu þess (orf.is)
Meira..
Heimsókn forseta Íslands
Miðvikudaginn 21. mars kom forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn til ORF á Keldnaholti
Meira..
ORF flytur í nýjar höfuðstöðvar
Föstudaginn 23. febrúar voru nýjar höfuðstöðvar ORF formlega vígðar að viðstöddum hluthöfum, starfsmönnum og öðrum gestum
Meira..
Lóð í Grindavík fyrir gróðurhús
ORF hefur fengið úthlutað 19.000 fermetra lóð frá Grindavíkurbæ. Jafnframt hefur Byggingarnefnd Grindavíkur samþykkt teikningar að 2000 fermetra gróðurhúsi fyrirtækisins
Meira..
Samningur um samstarf sveitarfélagsins Skagafjarðar og ORF undirritaður
Á dögunum var undrritað samkomulag um samstarf sveitarfélagsins Skagafjarðar og ORF á sviði líftækni þar sem kannaðir verða kostir þess að taka upp sameindaræktun á afmörkuðu svæði í Skagafirði og próteinúrvinnslu í Skagafirði tengt þessari ræktun
Meira..
Umfjöllun um ORF í BiotechScandinavia
Í desember blaði BiotechScandinavia var ítarleg umfjöllun um ORF, starfsemi þess og fyrirætlanir
Meira..
Tíuþúsundasta erfðatækniplantan frá ORF
Nýlega hélt ORF upp á þann merka áfanga að hafa framleitt í vefjaræktun 10.000 erfðatækniplöntur
Meira..
Nýir hluthafar ganga til liðs við ORF Líftækni hf.
ORF hefur nýlega gengið frá samningum um sölu á hlutafé fyrir um 350 milljónir króna. Kaupendur eru 20 íslenskir aðilar en stærsti einstaki fjárfestirinn er Valiant Fjárfestingar ehf., dótturfélag Sunda ehf. Jafnframt var kosin ný stjórn félagsins en stjórnarformaður hennar er Tanya Zharov.
Meira..