ORF Líftækni
ORF Líftækni hf. er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki á sviði
líftækni sem hefur þróað nýstárlega framleiðsluaðferð til að framleiða verðmæt, sérvirk prótein sem m.a. notuð eru
til læknisfræðirannsókna víða um heim. Afurðirnar hafa hlotið hrós fyrir
hreinleika og gæði og fyrirtækið vakið athygli erlendis fyrir nýskapandi grænan
iðnað. Nokkur þessarra próteina eru einnig eftirsótt í húðvörur og dótturfélag
ORF Líftækni , Sif Cosmetics sér um þróun afurða fyrir þann markað. Hjá ORF
Líftækni og dótturfyrirtæki þess starfa nú um 40 starfsmenn, langflestir háskólamenntaðir. Fyrirtækið er
með þrotlausu þróunarstarfi og uppbyggingu, komið í fremstu röð fyrirtækja í
heiminum á sínu sviði . ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís,
Útflutningsráðs og Nýsköpunarmiðstöðvar árið 2008.