Um Orfeus™ kerfið
Orfeus™ kerfið byggir á því að nýta fræ
byggplöntunnar sem smiðju fyrir sérvirk prótein. Með aðstoð nýrrar
þekkingar í erfðatækni er plöntunum gefin „erfðafyrirmæli“ um að framleiða þau
í fræjum sínum. Þessi erfðafyrirmæli eru í raun nákvæmlega smíðaðar
erfðaupplýsingar í stórri DNA sameind sem flutt er yfir í byggið í hvert
sinn sem framleiða þarf nýtt, sérvirkt prótein. Eftir flutninginn
verður til nýtt yrki af bygginu sem er eins að öllu leyti og annað bygg
nema að það getur kerfisbundið framleitt þetta sérvirka prótein í fræjum
sínum. Eftir uppskeru eru sérvirku próteinin fínhreinsuð úr fræjunum
með nýjustu tækni og gæðaprófanir gerðar áður en að sölu kemur.
Orfeus™
kerfið er afrakstur öflugs tækniþróunarstarfs innan fyrirtækins
undanfarin ár, þar sem nýjustu tækni og vísindaþekkingu er beitt til að
ná þessum árangri.
Nánar um kerfið:
- Öryggi afurðanna
er einstakt – engin smitefni, hrein afurð úr hreinni
náttúru.
- Rétt myndbygging próteina tryggð með fullkomnu
próteinframleiðslukerfi heilkjarna lífveru.
- Uppsöfnun próteina í
fræinu, dvalarstigi plöntunnar, tryggir gæði og endingu viðkvæmra og
erfiðra próteina.
- Arfhreinar framleiðsluplöntur sem uppfylla
ströngustu gæðakröfur nútíma framleiðsluhátta.
- Sveigjanleiki í
magni (µg-mg-gr-kg).
- Uppskölun er einföld og hagkvæm.
- Geymsla
próteinanna er í góðum höndum náttúrunnar; fræ varðveita prótein fram
að spírun, jafnvel árum saman. Náttúran bjó til bestu lausnina og við
njótum góðs af því.
- Geymsla próteinanna í fræjum gerir okkur
kleift að aðskilja framleiðslu og úrvinnslu – próteinin
eru hreinsuð úr fræjunum eftir þörfum og eftirspurn.
- Afkastamikið
framleiðslukerfi sem byggir á grænni orku, ljósorku og jarðhita
(gróðurhús).
- Kerfið hefur sannað sig við framleiðslu ólíkra
próteingerða af öllum stærðum og gerðum svo sem ensíma, vaxtarþátta og
umritunarþátta.