ORF Líftækni hf. er ungt og vaxandi fyrirtæki, þar sem
frumkvöðlaandi ríkir með mikla möguleika á framþróun í starfi fyrir
dugmikla og áhugasama starfsmenn.
Fyrirtækið er leiðandi í framleiðslu sérvirkra próteina
af miklum gæðum fyrir læknisrannsóknir, og líftækniiðnað. Með þróun og
nýtingu á framleiðsluaðferð sinni, sameindaræktun í byggi, stefnir ORF
markvisst að enn frekari uppbyggingu hátæknifyrirtækis í fremstu röð á
alþjóðlegum markaði, með áherslu á að selja afurðir sínar, vaxtarþætti,
til rannsóknastofa á sviði frumurannsókna (t.d. stofnfrumurannsókna),
frumuræktunar og þróunar vefjasmíði (regenerative medicine) undir
vörumerkinu ISOkine™.
Áhugasömum einstaklingum með menntun eða reynslu á sviði
próteintækni, sameinda- eða frumulíffræði, sem vilja taka þátt í
uppbyggingu og þróunarstarfi hjá spennandi fyrirtæki er bent á að senda
umsókn með ferilskrá til starf@orf.is.