ORF Líftækni - framleiðsla á sérvirkum próteinum
Nýstárleg tækni - ný nálgun - nýir möguleikar
ORF Líftækni er íslenskt hlutafélag sem þróað hefur nýstárlega aðferð, Orfeus™ kerfið, fyrir framleiðslu á sérvirkum próteinum fyrir læknisrannsóknir, lyf og iðnað. Prótein eru svo flókin að byggingu að þau er einungis hægt að framleiða í frumum lífvera, sem gerir þau afar dýr í núverandi framleiðslukerfum (bakteríur og spendýrafrumur). Orfeus™ kerfið byggir á því að nýta sér fræ byggplöntunnar sem smiðju fyrir þessi prótein. Kerfið er afrakstur öflugs vísinda- og þróunarstarfs hjá fyrirtækinu undanfarin ár, en með því er hægt að lækka verulega framleiðslukostnað þessara próteina og auka gæði þeirra. Með Orfeus™ kerfinu og markvissri viðskiptanálgun hefur ORF Líftækni skipað sér í fremstu röð fyrirtækja á þessu sviði í heiminum.
ORF Líftækni og Sif Cosmetics auglýsa sex laus störf
ORF Líftækni og dótturfyrirtæki þess Sif Cosmetics leita eftir áhugasömum sérfræðingum, tæknimönnum og starfsmönnum í framleiðslu á sérvirkum próteinum úr byggi, vefstjóra og hönnuði, sérfræðingi í þróun á framleiðslutækni félagsins, og gæðastjóra fyrir núverandi framleiðslu og fyrirhugaða GMP framleiðslu félagsins.
Dótturfyrirtæki ORF Líftækni setur byltingarkennda húðdropa á markað
Sif Cosmetics kynnti í vikunni EGF BIOeffectTM húðdropa sem eru byltingarkennd nýjung á snyrtivörumarkaði
ORF Líftækni hlýtur Eurostars rannsóknastyrk
Nýverið hlaut ORF Líftækni hf. ásamt samstarfsaðilum sínum eftirsóttan rannsóknastyrk hinnar Evrópsku Eurostars áætlunar. ORF Líftækni leiðir verkefnið sem snýr að þróun nýrrar tækni við úrvinnslu próteina sem hefur burði til þess að verða bæði einfaldari og hagkvæmari en áður þekkist. Þetta er í annað sinn sem íslenskur aðili hlýtur styrk úr Eurostars áætluninni.
ORF Líftækni hf. í nýjar höfuðstöðvar í Víkurhvarfi 3, Kópavogi
ORF Líftækni er þessa dagana að flytja höfuðstöðvar sínar um set. Fyrirtækið hefur frá árinu 2007 verið með aðsetur í húsnæði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Keldnaholti en flytur nú í nýtt húsnæði í Víkurhvarfi 3 í Kópavogi. Mikil breyting verður á allri aðstöðu með flutningunum en nýja húsnæðið er mun stærra og verður sérsniðið að starfsemi fyrirtækisins.
Íslensk orka - íslenskt hugvit - sérvirk prótein í sameindaræktun
ORF Líftækni er þátttakandi í Vísindavöku 2009, sem er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, föstudaginn 25. september, í Listasafni Reykjavíkur kl. 17:00-22:00.
ORF Líftækni á sýningunni Reykjanes 2009 - Þekking, orka, tækifæri
Sýningin Reykjanes 2009 verður haldin í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og þar verður kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu.
